Prófíll

  • Nafn: Arndís Ey Eiríksdóttir
  • Netfang: arndisey@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fataiðnnemi
  • Um mig: Sjitt..... illa djollí!!!
  • Annað: Frelsið er yndislegt!!!

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Já ég held bara að ég sé enginn bloggari

05. febrúar 2008 klukkan 21:08




R.I.P. Sirkus*
We had some good times!!!
Arndís Ey Eiríksdóttir
4 athugasemdir

YAWWWWNNNN...!!!

27. desember 2007 klukkan 23:26
Já maður var víst búinn að lofa bloggi...
Verst að ég veit aldrei hvar ég á að byrja þegar maður er að reyna að kreista þetta svona... En jamm stelpan er aðeins búin að ofgera sér seinustu c.a. tvo mánuðina.... skóli, vinna og ey.... Fyrst voru það lokaverkefnin og svo prófin og prófverkefnin, þá bara var maður í skólanum 24-7, svo var það að sauma nokkrar pantanir og vinna líka í jólastressinu... Tveggja mánaða keyrsla aðeins farin að láta á sjá og Úff ég var bara farin að vera eins og vofa og held ég sé enn að losna við að vera Zombie lookalike hérna!!! Vill einhver koma í keppni?
En nokkuð sátt með mig samt þar sem að mér gekk rosa vel í prófunum og allir rosa ánægðir með fötin sín og ég búin að vinna mér inn peninga til að geta kannski tekið janúarmánuðinn aðeins pínu ponsu rólegra ahhhh...
Núna er ég samt bara að chilla heima hjá mömmu og vinna nokkrar myndir og svona. Missa af tónleikum sökum of mikillar þreytu muhh
En helgin verður vonandi tekin á hressleikann.. Jórunn Björk Danadrottning ætlar að gera sér ferð í Reykjavíkina og við munum Smala saman nokkrum fögrum fljóðum til að skála við...
Svo verða það nottla áramótin þar sem ég og Göggzla erum að plana dreifbýlispakks dinner í Rvk, það er nottla algjört vesen fyrir okkur fyrrverandi hillbillana að familían sé plöntuð útum allar jarðir og maður þurfi bara að skála í jarðaberjagums á miðnætti til þess að geta keyrt að hitta vini sína eftir á. Þannig að ef ég er að gleyma að bjóða einhverjum að vera memm þá endilega bara bandast við mig honeys*
En núna nenni ég bara alls ekki að skrifa meir og ætla að fara að koma mér í bæinn, tékka kannski á hvort ég sé alveg búin að missa af Johnny and the Rest og Grasrótum og ef svo er þá er ég farin í bælið og ætla að hrjóta hátt og Dátt þangað til ég mæti í vinnuna í fyrramálið!!!!!
Nokkrar myndir elskurnar-myndirnar sem ég fékk í jólagjöf frá Kareni minni ljósmyndanema, hún nefnilega tók smá photoshoot af mér fyrr í vetur á Gamla filmumyndavél-high key-verkefni í skólanum og fékk bara rosa gott fyrir það skilst mér.... þær misstu þó aðeins gæði þegar ég skannaði þær inn en hér eru þrjár





Ein jóla
 
Jólafín og sæt systkinin.... Ég í ey pilsi og Ingvar Örn í ey buxum

Og ein af eyJeans

Hár hnepptar gallabuxur - slimfit

Adios elskurnar.... njótið ykkar, étið yfir ykkur því að það má núna og fyllið út í brækurnar....

Ást og Kossar Arndís Ey*
Arndís Ey Eiríksdóttir
5 athugasemdir

Þegar laufið var ekki lengur nóg

05. nóvember 2007 klukkan 02:08
Þá prófaði hún víst Satín, silki bómull og ull....



Tískusýning Fataiðnbrautar iðnskólans var haldin á laugardaginn og ég var með þessar fjórar flíkur í henni... Var rosa gaman og gekk mjög vel!!! Skvísurnar sem módeluðu fyrir mig voru frábærar og ógessla hugrakkar því að við vorum fyrstar á svið :) þetta eru semsagt Dögg, María Lind og Snæ. Takk æðislega stelpur. Svo módelaði ég sjálf líka, sýndi bara eh sem ég átti því að enginn var tíminn til þess að gera neitt glænýtt og heitt útaf nánast samfleittum tveggja vikna veikindum hérna hjá mér... er búin að fá allar pestir vetrarins í einni illa góðri sallíbunu takk fyrir pent!
Annars voru rosa mikið af flottum fötum á sýningunni og bráðum koma vonandi myndir sem voru teknar úr salnum.
...hér eru líka myndir af e-u sem ég er búin að vera að gera....







Verður kannski ekki svo mikið nýtt hérna á næstunni því að það stefnir allt í geðveiki í þessum skóla mínum... Nóvember á eftir að vera líflaus mánuður og einkennast algjörlega alveg af lærdómi og stressi... örugglega alveg fram að jólum bara... en ég púlla þetta ;)
Já og svo var ég að byrja að æfa Afró sem að er bara mestasta snilld! Elska svona dansa og þetta er rosa púl líka!!!
Anyways... bara smá öppdeit...
later elskurnar***



Nördið EY*
Arndís Ey Eiríksdóttir
8 athugasemdir

Ammliskrakkarassgat!!!

15. október 2007 klukkan 12:10

Hæts... Já haldiði ekki bara að Dísan eigi afmæli núna, og hvað á maður að gera í því... hafið þið einhverntíma átt afmæli á mánudegi??? Það er alveg hálf spes, engu að síður verður allavega farið út að borða eða suhin... Svo bara er AIRWAVES að fara að byrja!! Úff það verður brútal löng helgi, á listahátiðinni eru fullt af sýningum að opna sem mann langar að attenda og svo tónleikar fram á nótt og skóli daginn eftir (ah allavega mið, fim og mán) ég hugsa bara að ég þurfi að fá mér smá spítt til að meika þetta ahhhhh djók!!!!!!!!!!
Allavega þá er minns bara var að vakna til að far aað fara að gera sig til í skólann og mjög góð helgi að baki... (smá geysp fyrst*) Búnir að vera yndislegir dagar, ég fór í klipp á fimm og sv
o fórum við Anna á smá kaffihúsa rölt og tókum hana Evu memm okkur-mjög skemmtilegt og viðburðaríkt kvöld, föstudaginn tókum við roooosa stilltann , hittumst í lunch og svo smá pínu ponsu vídjó um kvöldið, aðallega samt spjall og kósílegheit og svo fór minns að sauma fram á nótt. Laugardagurinn var svo tekinn snemma bara, fórum allan Sequences rúntinn og sáum margt merkilegt þar. Ammli um kvöldið svo og tókum mjög hresst djamm með Döggunni..... Sun var svo alveg snilld eins og helgin öll-vaknaði bara eiturhress-svo hress að ég ákvað að vera ekkert að hringja í farið mitt, bara tók STRÆTÓ til að sækja bílinn minn (trúið þið því) hehe já svo fór ég í kringluna og rakst á Kareni þar, tók hana svo memm í kolaportið og ákváðum svo að taka smá kaffihúsakósíness, en þar rákumst við á hana Örnu og svo hana Maríu, svo að þetta var orðinn fínn sunnudagschillhópur og við skemmtum okkur alveg konunglega :)
Svo var bara brunað Austur til múttu minnar sem bauð mér í afmælismat og pakka svona einum degi of snemma-Mmm ótrúlega góður matur og ég borðaði hráan hest í forrétt... Hafið þið einhverntíma smakkað hráan hest??? Datt ekki í hug að það væri eitthvað sem ég myndi leggja mér til munns en það var mjög gott hinsvegar-með púrtvínshlaupi og eitthvað spari spari (þetta hét samt grafið folaldafille eða eh-en það er hrár hestur og sú saga er nú meira djúsí)
Og hérna eru smá myndir frá helginni



Ég og Annan mín fríð

My name is Arndís And I'm a shoe-aholic!!!

Dísa, Anna, Dögg......... fabjú!

Og smá kolaportsrugl

En allavega-koma mér í skólann og vera segamega dugleg þar sem restin af vikunni mun verða hálf sibbin ;D

Knúúúúúúúúússssss Arndís ammliskrakki***
Arndís Ey Eiríksdóttir
2 athugasemdir

Hlaut að koma að því!

29. september 2007 klukkan 19:37
Jámm ég er sko orðin lasin!!! Er búin að vera mjög dugleg hingað til að sleppa við þessa flensu sem allir eru búnir að liggja í og slapp meira að segja við kvebbanebba og allan pakkann.. Var mjög glöð með það.. en neinei nú helltist bara allt yfir mig í einu og minns bara búin að vera lasin síðan á miðvikudaginn!!! Sem er ömurlegt því að ég er ekki til í að missa af í skólanum, saumaskapnum og vinunum :( muhh... liggja heima er verst í heimi... búin að catch up á friends, sex and the city og búin að taka eina mynd! Ég og Anna vorum nebbla báðar veikar, gátum share-að vanheilsunni okkar og tekið "kósí"kvöld saman með vídjókúri og tilheyrandi nefsogshljóðum og hósti....
En núna er ég búin að ákveða að hætta að vera veik... Mhm... nenni þessu bara ekki lengur að þarf að gera eitthvað skemmtilegt áður en ég verð andlega vanheil líka ;D heh
Annars er bara allt gott að frétta... Gengur allt eins og í sögu... allavega áður en ég varð veik, núna er ég búin að missa aðeins úr í skólanum og saumeríinu en ég verð bara að fá mér extra stóra orkusprautu í næstu viku og vinna þetta allt saman upp!
Ég ákvað líka að núna væri kominn tími á að EY*fötin fengu alveg spes síðu bara fyrir sig á mæspeis og er búin að vera að dunda í því í dag að græja hana.. reyndar er maður hálf tómur þegar maður er svona slappur svo að hún er bara á byrjunarstigi. En endilega þeir sem lifa og hrærast í myspace heimi að tékka á því.
http://myspace.com/eydesign
Setti inn slatta af myndum líka (ótrúlegt hversu mikið maður afrekar þó í veikindum-svona hangs er aldrei leifilegt annars) en læt nokkrar fylgja með eins og venjulega, svo er eg bara farin að elda mat handa litlu systkinum mínum og hitta hana Önnu mína sem er líka búin að ákveða að hætta að vera veik ;)

Fabjúless night með Dögginni

Mar verður nú að bursta stundum :) Minns og KarenZO minns á leiðinni út

Ég dansaði mega hressan hálfvitadans... jább aþþí ég er hálfviti Mhm... Stundum er líka bara virkilega mikil þörf á því!!

Og stundum bara verður maður að kyssa elsku heimalinginn sinn!!!

En núna er bara virkileg þörf á því að ég fari að koma mér að hitta fólkið mitt!!! Eigið yndislega daga öllsömul og vonandi fer kvebbanebbi ekki að elta ykkur uppi líka *Snít*

Kissess Arndís EY*
Arndís Ey Eiríksdóttir
Engin athugasemd

Frelsið er yndislegt!!!

14. september 2007 klukkan 23:21

Hola chicazzzzzzzzzzz*********

Ahhh best að segja ykkur smá fréttir þar sem að minns fór í mat til familíunnar (Mmmmm humar og kjöt og allskonar grænmeti og ávextir og sósa og ís og kaffi og vín og... og...og....úúúúffffffff) er svo södd núna að það er ekki séns á að ég geti hreyft mig næsta hálftímann eða svo!!!
Núna er skólinn byrjaður... sem er frábært, eeelska skólann minn og algjör snilld hvað maður lærir mikið í þessu námi!!! Það er líka nóg að gera hjá mér að gera mitt EY... aðallega nottla að gera peysurnar mínar sem er bara frábært en það versta er að maður hefur engann tíma til þess að koma nýjum hugmyndum í framkvæmd... En það bara bíður, maður má víst ekki flýta sér of hratt!!!
Ég fékk samt einhverja orkusprautu í rassinn við að byrja í skólanum... Hver mínúta þarf að vera nýtt til hins ýtrasta og ef ég er ekki að njóta lífsins þá veit ég ekki hvað... Ógessla mega fátækur námsmaður með hundrað verkefni í gangi en samt einhvernvegin nær maður að stop and smell the roses og knúsa vini sína og fjölskylduna!
Ég er svo alveg að verða nett biluð á Grafarholtinu... þetta er lengst uppí kína!!  fíla mig alveg sem rottu á röngum stað og vonast svo sannarlega til þess að geta flutt ASAP...  þó að íbúðin mín sé voða kósí og fín... það er bara ekki nóg-LOCATION LOCATION LACATION!!!! skilurru!
Annars erum við Dögg að spá í að búa til 102 Rvk... því verður plantað beint oná húsin í 101 og verða sumsé ALLT risíbúðir Mmmm.... Þetta mun heita EyDö komjúnítí og það eru sko ekki allir velkomnir... If you want in you have to earn it!!!
Aghhhh... ;)

Æji það er svo fullt að frétta en ég nennikki skrifa meir...  þið bara munið stay tuned esskurnar og aldrei að vita nema Dísan bloggi einhverntíma aftur á næstunni ;)
smá myndir en baaaaara smá, AIGHT....


Frá menningarnótt(degi) í Rvk.. Ég og Anna Fríða að mála til styrktar blátt áfram

Dönsuðum á listasafninu

Dönsuðum heima... OooG svo dönsuðum við alveg MEGA á GusGus um kvöldið!!!! Þar var ég of upptekin af dansinum til að taka myndir

Mín yndislega Zo HO Homie... Knús Mús***

Svo eru hérna einhverjar nýjar peysur.... er ótrúlega ódugleg að mynda þær reyndar :/ er stundum að flýta mér svo mikið að ég er búin að selja þær strax og ég sauma seinasta sporið! Úff... en ég er að reyna að vera dugleg við þetta svo fólk geti séð hinar og þessar týpur sem hægt er að fá hjá mér... og svo er alltaf hægt að koma bara með litaóskir og sonna og þá get ég gert peysurnar svolítið persónulegar og sætar :) ekki að fara að mæta neinni niðrí bæ í eins peysu... sem er snilld!!! Eða ég vona allavega ekki... ætti ekki að gerast nema einhver fari að copya.. sem er reyndar ótrúlega algengt í þessum bransa... þessi tískuheimur er alveg ótrúlega brútal og maður þarf að passa mestast uppá dótaríið sitt!!!







Bendi á að tékka bara á mæspeisinu mínu ef þið hafið áhuga á að panta http://myspace.com/arndisey (ég er líka miklu virkari við að setja myndir þangað inn af hinu og þessu) og svo er líka hægt að hafa samband á arndisey@hotmail.com
En núna er ég farin í smá partý.... seddan að sjatna og elskurnar mínar bíða... Awwww****

Later skater my bitsjess***

Arndís Ey Eiríksdóttir
2 athugasemdir

Dugnaðarforkur***

11. ágúst 2007 klukkan 14:39

Únós bloggós í tilefni þess að ég er í PÁSU!!!
Ég nefnilega er búin að vera svo dúleg að saumast og ætti að vera að því akkúrat núna en ég bara nennikki meir alveg strax ;)
Ætla sko ekki að segja ykkur neinar fréttir... Þeir sem vilja vita eitthvað verða bara að hringja og fá Dísuslúður ;D
En hinsvegar ætla ég að setja inn nokkrar myndir....



Hlýja þæginlega "upp að brjóstum" skólapilsið mitt...! Reyndar ekki alveg reddí en ég gat bara ekki beðið eftir að fara í það! Vantar nokkra sæta detaila... Kannski klára ég það einhverntíma ;)


Nýjasta hoodatýpan frá mér.... fer alveg að verða uppiskroppa með efni í þessum litum en hægt að fá hana í fullt fullt af öðrum flottum litum!!

T.d. þessum og mörgum fleirum....

Myndir vonandi fljótt af fleiri týpum!!

Mín sæta syss í EY* skokknum sínum

Og í hettupeysunni sinni.. We love lime***

Skólinn byrjar svo eftir rétt rúma viku og þá byrjar gamanið aftur ;) reyndar er ég búin að taka smá forskot á "sæluna" því að ég er búin að demba mér í kreisíness saumaskap, fullt af pöntunum í gangi og fullt í gangi hjá EY* sem allt kemur í ljós síðar... Ahh lots of leyndós mæ beibís ;D

En þá er ég farin að hækka í tónlistinni og sauma aðeins meir svo ég hafi samvisku í mér í kvöld til að taka mér frí og sinna yndislegu vinunum mínum og dansþörfinni ;D

LATER SKATER beipíkeiks***

knúsess og kissess Arndís EY*

Arndís Ey Eiríksdóttir
8 athugasemdir

Sumar og Sól í hjarta :)

28. júlí 2007 klukkan 16:13
Oh ég var búin að skrifa svo langa færslu hérna en hún þurrkaðist út... ARG!!! En svona er ég nú orðin ryðguð í þessi bloggeríi, tók mig alveg nokkrar tilraunir að muna lykilorðið og alles ;) Og ætli fólk sé ekki bara alveg búið að gefast upp á því að kíkja hingað inn hehehe :D
Þar sem að ég nenni ekki alveg að skrifa þetta allt saman aftur þá ætla ég bara að setja inn örfáar myndir hérna og leyfa þeim aðeins að tala sínu máli um sumt af því sem Dísan er búin að vera að bardúsast í sumar..... Njótið njótið vel....***



Ammli hjá Sunnu Punnu minni***
Ógissla mikið dansað og ógissla mikið gaman!!!


Með Dreunni í þvílíkri blíðu á Akureyri


Mmmmmm... slurp!!! Á torginu á Ak


Tinnan, Dísan og Jana GÆS!!

Últra Mega smælí píjur á kaffibarnum að dansa af okkur rassana


Við stelpurnar að hafa það ógissla mikið næs í Sirkusgarðinum

Arndís Ey, Steinunn Camilla og Arna Björg.....


Fallegastar í heimigeimi


Matarboð hjá Sigrúnu (Jenný, Anna Fríða, Arna Björg og Arndís Ey)

Sýndum okkar rétta andlit!!!

Ég og Anna Fríða... fallegasti og yndislegasti nágranni minn***

Fengum lánað smá síló og settum það á vitlausan stað held ég.... Hmmm... eru þetta mest djúsí varir sem þið hafið séð eða hvað!!!!


Anna er nottla yfir (ofur) Dansarinn!!

Að hafa það Segamega næs og sötra á Austurvelli í mongóBONGÓblíðu!!


Mega kærustuparið Friðjón og María á Austurvelli!!


Fjölskyldustund Gefur gull í mund... Arndís Ey, Lísa Björg og Bylgja Sif

Strákarnir Mínir.... Pabbi, Ingvar Örn og Brynjar


Berglind Frænka og Kristinn Bjarni giftu sig....


Endalaust til hamingju elsku elsku elskurnar mínar*****


Ari Minn Össason.... gamli gamli... Já gamli!

Og Magginn minn Rúnars (Líka gamli gamli) sést smá í hann...


Og meira að segja Styrmir gamli gamli gamli!!!

Brynjan mín beibí*

Er ekki búin að setja inn neinar myndir af nýjum fötum sem ég er búin að gera og satt best að segja þá eiginlega er ég ekki einusinni búin að taka myndir af öllum ;/ Eða ég var nú reyndar alveg búin að því en einn ákveðinn illi náði að deleta heilum þrjúhundruð myndum útaf myndavélinni minni :( sá einhverja lélega af sér og ætlaði að deleta henni en gerði bara alveg óvart DELETE ALL!!! Ég fór næstum að grenja I'M TELLING YOU!!!! En hérna er eh sem ég var svo heppin að ná að taka út af myndavélinni (misgamlar myndir) og rosa rosa mikið nýtt í gangi hjá mér, samfestingar, fleiri týpur af skyrtukjólum, jakkar, kjólar, leggings og fleira...


Hrikalega þægjó skokkur með þröngu stroffi svo að hægt er að nota hann sem bol líka....


Annar skokkur



Guys T!


Skyrtukjóllinn minn..... love it***

Svo er ég barasta ekki með myndir af fleiru ;( þarf eila að fá ykkur sem keyptuð til að senda mér myndir ef þið getið... það væri æðis!!!

Jámm myndablogg dauðans og nú eruð þið pínu ponsu fróðari um hvað á daga mína hefur drifið uppá síðkastið ;) þó þetta sé nú bara oggulítið brotabrot af myndunum. Svo er mín bara ennþá búsett í Kína (Grafarholtinu...lengst lengst lengst í rassabala) Vinna í Virku í sumar... selja fataefni allan daginn og úff púff fjúff I'M LIKE A KID IN A CANDYSTORE þarna!!!! Alveg búin að safna mér feitum, góðum forða fyrir veturinn :D Svo bara fer skólinn bráðum að byrja og ég hlakka ekkert smá mikið til!!!! Finnst þetta alltof langa sumarfrí hálfgerð tímasóun og vil bara læra og læra og læra meira.....!!!
Búin að vera ótrúlega dugleg að æfa mig og bissí að sauma og líka búin að vera æðis dugleg í að njóta lífsins... bissnessplan jafnvel á næstunni en samt bara og þá BARA ef skólinn leyfir....!!!!! (Tímalega séð sko) Kemur allt í ljós and I'll keep you posted ;)

Svo ein Pósulissjöss mynd í viðbót......


(Pósa:Arndís Ey...... Kjóll: EY*.... Mynd: unnin af Önnu Fríðu Jónsdóttur)

En nú er minns farin að gera sig til fyrir Colourfull ammlisveislu
Sólarkveðjur og skrilljón kissess my bitchess ;)
Arndís EY*

MIAW******


Arndís Ey Eiríksdóttir
5 athugasemdir

Hamingja og meiri hamingja.... PRÓFIN BÚIN!!!! Ó MÆ!

09. maí 2007 klukkan 20:14
Hæ beipíkeiks****
Hef ég verið kosin VERSTI bloggarinn eða hvað???
ég nottla sökka í essu og sökknessið verður bara meira með hverri færslunni ;)
Prófa og skóla crazynessið er BÚIÐ!!!! Oh svo mikil hamingja!!!! Mér gekk held ég barasta vel... vona allavega að einkunnarspjaldið segi það líka, en mar veit aldrei, þetta er nottla smámunasamasta nám í heiminum... ég sem hélt að ég væri fullkomnunarsinni... ekkert miðað við þetta!!! Sem er samt mjööög jákvætt því að þá fer maður ekki að venja sig á eikkura ósiði :)
Svo byrja ég bara að vinna 15. maí og fæ út úr prófunum 16. þannig að þangað til er ég bara í mega tjilli ;) ég ætlaði nú að sauma alveg tíu hettupeysur og tíu kjóla og eh samfestinga en ég ætla bara aðeins að fá að vera löt og vera í fríi eftir allan lærdóminn og sonna. Byrja kannski á þessu um helgina en þá er fólk nottla búið að plana júródjamm.... er ekki bara í lögum að horfa á það? Og svo nottla kosningar... Ég er samt ekki viss um að ég nenni nebbla, enginn júrófan og ótrúlega ópólitísk...  á föstudaginn fer ég út að borða með fataiðn elskunum mínum Sigrúnu og Sunnu og við ætlum sko aldeilis að fagna því að vera búnar í prófum og gera eitthvað djúsílissjöss***
Svo er ég nottla flutt... loksins... ég er sko búin að gera íbúðina ógessla kósí og það er varla að ég nenni að heimsækja fólk... ég hef það svo gott heima hjá mér að ég vil bara að það komi og heimsæki MIG! hehe :D það er nú eitthvað verið að reyna að venja mig af essu held ég en allavega eru allir velkomnir í heimsókn ef einhver nennir í sveitina GRAFARHOLT!!! Sem er nottla bara í Kína!!!
Svo var seinasta helgi alveg mega fönn+bjútífúll!!!! Fallegasta helgi ársins ;)
Jóna hélt uppá ammlið sitt og þá var sko búningadjamm.... misfagrir voru gallarnir og sumir þekktust varla bakvið svaðalegt meiköpp og grímur.... svo var ein með búningafóbíu það kvöldið og mætti bara í gamla hrc kjólnum sem by the way er mest slöttí vinnugalli sem til er!!! En ég var búin að skipta yfir í Dísufötin bara eftir svona hálftíma :þ ég hef samt afsökun því að það vara svo mikið að gera hjá mér í lærdómnum að ég hafði engan tíma til þess að finna mér búning!!!! Er það ekki annars gild afsökun????
Núna er það Selfossið og hafa það doldið næs bara... Keypti mér VOLTA áðan hjá honum Svenna og stoppaði hjá honum í örugglega tveggja tíma spjall en núna get ég farið að blasta BJÖRK og meira að segja horft á tónleikana á DVD..... hún er nottla bara GULL!!!
En ég er allavega að dugnaðast við að setja inn myndirnar núna og hendi þeim hingað inn bara næst þegar ég get..... nennikki meira tölvuhangsi í bili.... hér eru samt nokkrar


þekkiði þetta fólk?? Sjitturinn titturinn Jóna vampíra og Gauji uhhhh..... Mexicani??? eða?

Kóngurinn trúbbaði í teitinu*

Mátaði Júllurnar hennar Jónu.... Double D ha :D ekki aaaalveg að fara mér haha


Andrea HOT MAMA!!! Og Jónína PUSSY!!!

sjá etta flaaaming fallega fólk!!!!!!!!!


Farin að knúsast í essku familíunni minni.....
KISSESS**** EY*
Arndís Ey Eiríksdóttir
12 athugasemdir

Bjútífúll pípól***

13. apríl 2007 klukkan 12:41

Hæhæhæææææjjj

Oh páskafríið er barsta BÚIÐ!!! Oj hvað þetta var fljótt að líða eitthvað... og ég gerði ekki neitt!!! Eða jújú.. ég lærði alveg doldið... ekki eins mikið og ég ætlaði samt, bjó mér til nýjan mæspeis prófæl og tjúttaði smá... já og boooorðððaaaaðððiiii... sjitturinn titturiinn... nú þarf mar að fara í megrun sko!!! Ég gaf litlu syss meira að segja hálft páskaeggið mitt svo að ég myndi ekki verða algjör feitabolla hehehe :D

En skólinn er aftur orðin Crazy bananas og verkefnin hlaðast upp... ég mun ekki eiga mér neitt líf þar til sjöunda maí en þá er ég búin í prófunum....Svo er ég nottla að fara að flytja og díííí ég veit ekkert hvernig ég á að púsla!!!

Ég er endalaust að vandræðast þessa dagana...! Sem að sumir eru nú fróðari um en aðrir og ég var að fá nýjar ótrúlega leiðó fréttir í gær! Öss... væli væli væl... það er sko ekki stanslaus hamingja hjá manni alveg endalaus!!!

En í seinustu færslu var ég að tala um að fara kannski... og bara kannski á tjúttus það kvöld... það kemur ykkur nú örugglega ekki á óvart að ég fór... audda mar!! Og það var segamega gamansaman!!!! En daginn eftir ákvað ég að ellefan væri skítapleis.... Sorry pípz! Vinir mínir eru margir svo miklir massa rokkarar að ég er nú oftar en ekki dregin þangað inn en eftir þetta skipti þá var ég ekki sátt..... kom heim í ónýtum skóm!!!! Ég hjartaði þessa skó sko ógessla mikið!!! Þeir voru sko gylltir og munstraðir og ógó flottir, með svona tásugati og kostuðu sko penga!! Og ég var berfætt í stuttum samfesting við... svo þegar við vorum farin út af staðnum þá var ég bara með SVARTAR slettur upp allar fæturnar og skórnir voru orðnir svartir barasta líka!!! Ég fór nottla í fótaskrúbb þegar ég kom heim og það tók mig marga daga að ná draslinu af löppunum á mér! eins og það væri bara tattúað á BJAKK!!!!! hversu ógeðslegt getur gólfið þarna inni verið! Þannig að hér með vara ég alla skóLOVERS við þessum stað!

En já þrátt fyrir eina ónýta skó þá tjúttuðum við mega vel og það var trubblað fönn!!! Ég meira að segja er búin að setja inn myndir af issu og alless palless!!!


Ég og Drean mín sæta sæta***


Bjútífúl Pípól!!!



Hitti þennan!!! Do you belive it!!!


Marvin pósukall*


Súper dúper Hamingjusömu stelpur með svatrar táslur!!!!

Já svo eru einhverjar fleiri myndir þarna til hliðar undir Páskadjamuzzzzz***

En núna virðist ekkert djamm vera á næstunni, ætlaði á Peter, Björn and John í kvöld á Nasa, planað fyrir langa löngu, en ég er að fara að missa af því líka eins og öllum tónleikum í heiminum og geyminum :( skóli klukkan níu í fyrramálið.... Hah!! Ég er svo dúleg! Ég vil kredid fyrir etta pípól!

En núna er ég farin að skila verkefni og pakka doldið niður í kassa.... see jú leiter aligeiter!!!

krúsur og kyss og allt það***
EY*

Arndís Ey Eiríksdóttir
5 athugasemdir